Ef ég hefði bara.........

Já kannski hefði verið best að Kaupþing hefði farið úr landi. Menn voru samt hræddir við að tapa skatttekjum ef bankastofnanir hefðu farið úr landi. Ætli skatttekjurnar sem töpuðust blikni samt ekki í samanburði við þá fjármuni sem hafa tapast við að bankarnir settu þjóðina á hausinn.

     það á væntalega margt eftir að koma í ljós í framtíðinni um það havað fór úrskeiðis, vonandi kemur allt í ljós en það er samt ólíklegt.

      Sigurður og félagar í Kaupþingi mega alveg taka þetta klúður nærri sér. Og reyndar mega fleiri gera það, t.d. Bjarni Ármansson hinn norski,Björgúlfarnir báðir Jón Ásgeir og Jóhannes Bónus. Og svo er ég ansi hræddur um að ráðamenn sem hafa verið við völd síðustu átta árin eða svo megi taka þetta ansi nærri sér líka, ber þó sennilega fyrst að nefna Davíð Oddson.

      Ég er svosem vissum að Davíð og félagar í Seðlabankanum töldu sig vera að gera rétt þegar þeir hrundu þessu af stað með Glitnismálinu, en ég trúi því ekki að þeir hafi ekki vitað betur þegar þeir hækkuðu stýrivextina. Rökin fyrir þeirri hækkun var að styrkja krónuna. Ég held bara að það sé orðið of seint, krónan er ónýt og ég á bágt með að trúa því að einhver heilvita maður leggi í að versla með hana á næstu árum nema kannski einhverjir mjög áhættusæknir fjárfestar, svona svipaðir og íslenskir bankamenn.

     Ég er samt sammála Sigurði að það er fáránlegt að halda krónunni, hún bara verður að fara og það sem fyrst.

lifið heil


mbl.is Stærstu mistökin að flytja ekki Kaupþing úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretagrey!!

Þetta virtist ekki vera mikið mál fyrir Hollendingana og ættu Bretar að taka þá til fyrirmyndar.

Mér finnst reyndar kominn tími á að Gordon Brown gefi út yfirlýsingu um að hann hafi hlaupið á sig og verið of hvassyrtur, og hann mætti kannski biðja okkur Íslendinga afsokunar á að hafa gert stærsta bankann okkar gjaldþrota, þótt ég sé reyndar þeirrar skoðunar að hans orð hafi aðeins verið dropinn sem fyllti mælinn.

Þeir félagar Brown og Darling mættu líka alveg fræða breskan almenningu um það að þessi bresku sveitafélög og samtök sem áttu peninga þarna inni og við Íslendingar munum edurgreiða þeim, hefðu ekki fengið penny með gati til baka ef þessir peningar hefðu verið geymdir hjá breskum bönkum. Sveitafélog og félagasamtök eru nefninlega undanskilin svona innistæðutryggingum í breskum lögum, samkvæmt úttekt spegilsins á Rás 2.

Ætli Brown kallinn verði ekki að segja af sér þegar öll kurl koma til grafar og það kemur í ljós að hann var að beita víðfrægri smjörklípuaðferð til að draga athyglinni frá þeim ógöngum sem hann er kominn í á heimavelli.

lifið heil


mbl.is Stefnt á fund með Darling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú atriði

1) Geir og félagar hefðu að mínu mati átt að hafa stjórnarandstöðuna með í ráðum um helgina í öllum þessum fundarhöldum.

2) Ég tel það ekki vera VG og Frjálslyndum til framdráttar að sitja hjá við atkvæðagreiðslu laganna.

3) Er ekki eitthvað að ef Guðni Ágústsson virkar á mann eins og sá sem vitið hefur?? Errm

lifið heil


mbl.is Ný lög um fjármálamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefnd Jóns Ásgeirs

 Það vita það sjálfsagt einhverjir ef ekki allflestir að það gengur póstur í netheimum sem ber þær sakir á Jón Ásgeir og hans félög, að hann hafi stípað Glitni af lausafé að undanförnu

 

Ekki veit ég hvað er mikið til í þessu en þó finnst mér þetta alveg eins líkleg skýring of hver önnur. Ef þetta er satt þá gæti ég dregið þá ályktun, að þegar Jón Ásgeir sagði í viðtölum um daginn að nú hefðu einhverjir aðilar náð að koma fram hefndum í ákveðnum átökum, að hann hafi ekki verið að meina að Davíð væri búinn að hefna sín, heldur voru þetta skilaboð til Davíðs, "Dabbi minn! nú er ég búinn að plata þig til að bjarga Glitni eftir að ég náði öllum aurunum til mín Cool sennilega best fyrir þig að hætta því ég vinn alltaf"

 Hver veit.

      Svo er aftur allt annað mál hver það var sem snéri Máa við í nærbrókinni. Ég átti ekki von á því að hann myndi éta ofan í sig eitt einasta orð, en svona er þetta, menn gera ótrulegustu hluti þegar þeir halda að þeir séu blankir.

     Annars segist Mái vonast til þess að hluthöfum verði bættur skaðinn!!! Ég hélt að Þorsteinn Már vissi það manna best að hlutabréfaviðskipti eru áhættufjárfestingar og þar er hver og einn að taka sénsinn. Þeir sem keyptu í Glitni gerðu bara mistök og verða einfaldlega að kyngja því. 

lifið heil


mbl.is Hvetur hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjandinn laus!!

Það gengur ekki að sitja á bloggbekknum endalaust og tjá sig ekkert þegar allt er að fara í hundanaWhistling 

Það er ekki álitleg staða okkar Íslendinga núna, allur umheimurinn virðist búinn að tapa trúnni á fjármálakerfið okkar. Og hvað er að frétta af útrásinni? ég hafði það orðið á tilfinningunni að við ættum svo marga banka úti í heimi að það gæti ekki orðið gjaldeyrisskortur hér heimaGasp 

Nú þurfa náttúrulega allir að taka sig saman og vinna á þessum vanda. það skyldi þó ekki vera að Davíð hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann minntist á þjóðstjórn, því ekki virðist ríkisstjórnin hafa áhuga á að gefa andstöðunni einhvern séns á að vera með. é er samt þeirrar skoöunar að nú megi Dabbi fara að þegja. Hann lét Jón ásgeir plata sig up úr skónum og bjarga Glitni, en Nonni Bónusson er náttúrulega búinn að berstría bankann peningalega í eigin þágu eins og fleiri fyrirtæki.

En hvað um það Davíð má hætta núna. Þetta er orðið gott.GetLost


það skyldi þó aldrei....!!!!

Það hefur mikið gengið á bæði á hlutabréfa og gjaldeyrismarkaði á undangengnum misserum. Flestir eru alveg að missa sig yfir kreppu og peningaleysi,enn öðrum sárnar að geta ekki keypt sér flatskjá í eldhúsið vegna kreppunnar Whistling

Það hafa verið uppi ýmsar raddir um að það þyrfti að bjarga bönkunum úr þessari kreppu, og einmit á meðan sú umræða stóð sem hæst þá kynntu þessir sömu bankar tugmilljarða hagnað á fyrsta ársfjórðungi, hvernig má það vera??? það skyldi þó ekki vera að hluti af þessum hagnaði felist í því að bankarnir eru að geyma stóran hluta af sínu fé í erlendum gjaldmiðli, svo þegar krónan veikist þá aukast gjaldeyriseignir bankanna reiknaðar í krónum.

N+u koma semsagt Kaupþingsmenn til með að græða meira á þessum breytingum því þeir verða skyldaðir til að selja gjaldeyri og þar með styrkja krónuna sem aftur gerir það að þeir eiga þess kost að kaupa enn meiri gjaldeyri fyrir þessar sömu krónur. ég geri ráð fyrir að þeir viti um einhverjar fjallabaksleiðir til að komast í  kring um þessar reglur og auka hagnaðinn.

Ég er alls ekki á móti hagnaði bankanna!!! síður en svo, það sem mér finnst verst er að bankarnir virðast ekki hafa áhuga á að láta hinn almenna viðskiptavin njóta þess að hagnast líka Bankarnir eru t.d. alveg á móti því að fólk sé að geyma (spara) sína peninga í erlendri mynt það sé svo mikil gengisáhætta, en svo geyma þeir sjálfir eins mikið og þeir mega í erlendri mynt.

Skrýtið Bandit

lifið heil


mbl.is Kaupþing þarf að skipta út gjaldeyri vegna nýrra reglna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Go Whites!!!

Þetta var nú í meira lagi ánægjulegtGrin  horfði á leikinn á Ölland road með um 35 öðrum Leedsurum Tær snilld Wizard
mbl.is Leeds í úrslit umspilsins á ævintýralegan hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væl!!!

Hvað með það þótt Jóhanna hafi sagt að markaðurinn væri ekki eins helfrosinn og talað væri um?? er það ekki bara af hinu góða? svona umtal ætti frekar að blása lífi í markaðinn. Og hvað ætla Grétar og félagar að segja við Jóhönnu? sennilega endurtaka það sem hefur verið í fréttum undanfarið.

Nú eru farnar að berast fréttir af fasteignasölum sem eru að segja upp fólki og loka. það er náttúrulega ekki gott en flestir í þessum bransa eru á árangurstengdum launum og því búnir að þéna vel meðan á ruglinu stóð núna síðustu 3-5 árin. ef þeir hafa verið skynsamir þá eiga þeir sennilega góðar summur á bankareikningum. ef þeir hafa verið óskynsamir þá hafa þeir hugsanlega fjárfest í húsnæði með það fyrir augum að selja og græða, hafa sennilega haldið að ruglið héldi áfram.

það hefur verið talað um að ríkistjórnin eigi að grípa inn í til að koma í veg fyrir hrun á fasteignamarkaðinum. Það finnst mér vera alveg fáránlegt. Vegna þess að hrunið sem er í vændum á fasteignamarkaðinum er alls ekki hrun, það er einfaldlega leiðrétting á rugli sem fór úr böndunum. Og þegar um svona rugl er að ræða þá græða sumir og aðrir tapa. Það er bara þannig.

sorrý

lifið heil

 


mbl.is Fasteignasalar óska eftir fundi með félagsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grínið búið!!

Jæja gott fólk! Þá er best að pakka saman og fara heim, það verða engar breytingar gerðar á neinu. Eldsneytisverð helst hátt áfram og Möllerinn er búinn að fara til Brussel að tala máli Sturlu og félaga. Verst að Sturla skyldi ekki vilja tala máli félaga síns.

Geir Hinn Haarði segist ekki vilja tala við lögbrjóta,Bandit og ég gef mér að hann vilji þá ekki tala við lygara heldur.

Það sem fór úr böndunum í gær var á engan hát á ábyrgð trukkanna og ekki þessi aumingjans trukkabílstjóri heldur sem réðist á löggunaPolice í dag. Miðað við fréttaflutning síðasta sólarhringinn hafa bílstjórarnir verið að hittast kl 5 á morgnana í kaffi hér og þar. Ég ætla að leggja til að þeir fari fyrr að sofa og seinna á fæturSleeping svo þeir ráði við skap sitt næstu daga, þá er aldrei að vita nema maður geti farið að sýna þeim skilning og jafnvel stuðning aftur.

annars vil ég benda fólki á að skoða www.samtaka.is  athyglisverð lesningWhistling


mbl.is Sturla: „Ekki á okkar ábyrgð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki orðið gott!!!!

Það er búið að vera nóg að gera viðað fylgjast með fréttum síðasta sólarhringinn. Skrílslætin Í gær við suðurlandsveg voru engri annarri vitleysu lik. þar safnaðist fólk saman til að kasta eggjum og mynda smá stemningu FootinMouth og nýjustu fréttir segja að eggjakastið hafi verið í boði fréttastofu stöðvar 2 og er það ekki til að auka hróður þeirrar annars ágætu æsifréttastofu.Whistling

Mjög margir eru búnir að tjá sig um þetta mog sýnist sitt hverjum, enda er það svo magnað með okkur mannfólkið að við sjáum bara það sem við viljum sjá. Einn bloggari spyr hvort það eigi að "skapa samþykki" fyrir svona lögregluofbeldi,Police annar segir að það eigi ekki að samþykkja svona skrílslæti og svona ganga pílurnar sitt á hvað.

Ég er þeirrar skoðunar að Bílstjórar séu búnir að missa trúverðugleikann,Wizard og að lögregla hafi gert rétt í gær. Það má vel vera að þeir hafi gengið full harkalega fram en þá er ég ekki að tala um að þeir kunni að hafa sprautað piparúða á konu með barn, heldur hafi þeir kannski tekið full hraustlega á köllunum sem er þó ekkert víst. en varðandi konuna og barnið sem "hugsanlega" urðu fyrir úða löggunnar þá leikur mér forvitni á að vita.....hvað í ósköpunum voru þau að gera þarna 3-4 metra frá brynvarinni óeyrðalögreglu. Maður bara spyr sig.LoL

 

lifið heil


mbl.is Ráðist á lögregluþjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ævar Austfjörð

Höfundur

Ævar Austfjörð
Ævar Austfjörð
Fertugur tveggja barna faðir, sölumaður og nemi. fylgist með fréttum og íþróttum. Einlægur stuðningsmaður Völsungs Leeds og Utah Jazz :)
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 9520

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband